Um Stangaveiðifélag Borgarness

Félagsskapur áhugamanna um stangaveiði í Borgarfirði

Stangaveiðifélag Borgarness er félagsskapur áhugamanna um stangaveiði. Eftir áralangan dvala var félagið endurvakið árið 2006.

Megintilgangurinn með endurvakningu félagsins var að gera það fjölskylduvænna með því að auka aðgengi að veiðistöðum þar sem fjölskyldur geta farið saman til veiða. Einnig að beina ungu fólki að stangaveiði um leið og gæta hagsmuna Borgnesinga í sambandi við veiði í nágrenni Borgarness.

Veiðisvæði

Árum áður var félagið með víðfrægar laxveiðiár á leigu; Miðfjarðará, Hofsá í Vopnafirði og Þverá í Borgarfirði en á seinni árum hefur félagið minnkað við sig og verið með ýmis vötn í sinni umsjón. Þau eru Langavatn á Mýrum, Hólmavatn/Lambá í Hvítársíðu og á síðustu misserum hið fallega Hlíðarvatn í Hnappadal þar sem hægt er að ná sér í bleikju og urriða.

Félagið hefur einnig til ráðstöfunar fyrir félagsmenn hið víðfræga veiðisvæði Seleyrina, þá fyrir landi Hafnar II og Borgarbyggðar en um það var gerður samningur á fyrsta áratug þessarar aldar. Þar veiðist töluvert af sjóbirting ásamt einhverri bleikju, en veiðimönnum er uppálagt að sleppa allri ósærðri bleikju aftur sökum bágs ástands Hvítárbleikjunnar.

Einnig hefur félagið veiðileyfi til sölu til félagsmanna í Hlíðarvatni í Hnappadal, þá í landi Hraunholta. Þar má svo finna huggulegan veiðikofa, sem ber nafnið Jónsbúð, og hægt er að leigja hann af félaginu.

Starfsemi félagsins

Félagið heldur opin hús yfir vetrartímann sem jafnan eru nýtt til að hittast og hnýta flugur, horfa á veiðimyndir og jafnvel bara fá sér kaffi saman. Hefur félagið haft afnot af kaffistofu Límtrés/Vírnets og kann stjórnin þeim miklar þakkir fyrir að leyfa félagsmönnum að hittast í húsnæði þeirra. Aðstöðuleysi félagsins hefur reynst erfiður ljár í þúfu og bindur félagið vonir við að vandamálið muni leysast fyrr en síðar.

Stjórn félagsins

VR

Valdimar Reynisson

Formaður

VP

Victor P Rodriguez

Gjaldkeri

Kolbrún Óttarsson

Vara gjaldkeri

PE

Pavle Estrajher

Ritari

IB

Ingi Björn Ragnarsson

Meðstjórnandi

Veiðimennska

Við hlutum af löngun til stangaveiða og þekkingu á ám og vötnum svæðisins.

Fjölskyldugildi

Við leggjum áherslu á að gera veiðar fjölskylduvænar og aðgengilegar fyrir alla.

Samfélag

Við sameinum stangaveiðimenn á Borgarnessvæðinu í þétt og hlýlegt samfélag.

Veiðisvæði í umsjón félagsins

Hlíðarvatn

Hnappadal — bleikja og urriði. Jónsbúð til leigu.

Langavatn

Mýrar — friðsælt veiðivatn.

Hólmavatn / Lambá

Hvítársíða — fjölbreytt veiði.

Seleyrar

Hafnarland — sjóbirting og bleikja.