Til baka í fréttir
Velheppnaður fjölskylduveiðidagur við Hlíðarvatn í Hnappadal
frettir25. maí 2026

Velheppnaður fjölskylduveiðidagur við Hlíðarvatn í Hnappadal

Góður fjölskyldu veiðidagur SVFB við Hlíðarvatn í Hnappadal

Laugardaginn 21.Júní stóð Stangaveiðifélag Borgarness SVFB fyrir fjölskyldu veiðidegi við Hlíðarvatn í Hnappadal. 

Veðrið var frábært hægviðri skýjað og hiti um 15 °C. 

Mæting var mjög góð um 30 manns mættu á þennan viðburð, og var þar mikið af ungum veiðgörpum sem voru mjög áhugasamir um veiðarnar.  Jón Ingi kristjánsson leiðbeindi þeim sem vildu með fluguköst og voru nokkrir sem þáðu það og fengu góða kennslu.  Fiskurinn var heldur tregur að taka en þó komu nokkrir fiskar á land en frekar smáir.  Undir lok dags fannst staður þar sem smáfiskur var nokkuð viljugur að taka og fóru ungu veiði garparnir þangað, þar fengu flestir fisk og fóru sáttir heim.

Svangir og þreyttir veiðigarpar gátu komið í Jónsbúð og gætt sér á pylsum og safa í boði félagsins til að ná í orku fyri meiri veiði.

Við í stjórn SVFB erum hæstánægð með hvernig til tókst og þökkum öllum þátttakendum fyrir frábæran og vel heppnaðan dag við vatnið.

Myndir og texti Valdimar Reynisson formaður SVFB

Myndasafn

+2

Smelltu á mynd til að stækka

Velheppnaður fjölskylduveiðidagur við Hlíðarvatn í Hnappadal — SVFB