Til baka í fréttir
Fluguhnýtingarkvöld í Boragrnesi 18.2.2026
frettir25. maí 2026

Fluguhnýtingarkvöld í Boragrnesi 18.2.2026

Stangaveiðifélag Borgarness og Fluguhnýtingarfélag Vesturland standa fyrir opnu fluguhnýtingarkvöldi í húsnæði Grunnskóla Borgarness miðvikudagskvöldið 18.febrúar kl 19:30.

Svona kvöld eru frábært tækifæri fyrir byrjendur eða forvitna til að kynnast fluguhnýtingum, fyrir lengra komna í faginu er þarna gott tækifæri til að spjalla, læra af reyndari og fá góð ráð eða hugmyndir að flugum. margir góðir hnýtarar haf stigið sín fyrstu spor á svona kvöldum. Fluguhnýtingar hafa þann kost að þær henta mjög breiðum hópi iðkenda bæði að aldri og líkamsburðum, fjölskyldur geta sameinast í fluguhnýtingum.

Aðgangur er ókeypis og við vonumst til að sjá sem flest fólk á þessum viðburði.

Undirbúningsnefndin

Fluguhnýtingarkvöld í Boragrnesi 18.2.2026 — SVFB