
Fluguhnýtingakvöld og stofnfundur
Þeir sem standa að stofnun félagsins fundu fyrir miklum áhuga á fluguhnýtingum á fluguhnýtingarkvöldum á Akranesi og Borgarnesi síðasta vetur og í framhaldinu var ákveðið að stofna félag til að virkja þennan áhuga.
Fluguhnýtingarfélag Vesturlands er félag áhugafólks um fluguhnýtingar, því er ætlað að efla og auka áhuga á fluguhnýtingum á Vesturlandi. Félagið er öllum opið sem vilja taka þátt.
Fluguhnýtingarfélag Vesturlands kemur til með að standa fyrir fluguhnýtingarkvöldum á Akranesi, í Borgarnesi og víðar ef óskað er. Einnig stendur til að bjóða upp á ýmiskonar fræðslu og kennslu í fluguhnýtingum.
Búið er að tryggja félagsmönnum afslátt hjá helstu veiðiverslunum á suðvestur horninu auk þess að fá afslátt af Veiðikortinu.
https://fb.me/e/5VkKqJaG7 hér er hlekkur á facebook viðburð kvöldsins
Fluguhnýtingar henta fólki af öllum kynjum og breiðum aldurshópi. Fjölskyldur geta sameinast við fluguhnýtingar og það þarf ekki krafta eða dýrar græjur til að hnýta flugur, hægt er að komast langt með byrjenda setti og góðu ljósi. Fluguhnýtingar efla einbeitingu, samræma hug og hönd og eru ein af betri núvitundaræfingum sem finnast. Svo er mun skemmtilegra að veiða fisk á flugu sem hnýtt er af viðkomandi veiðifólki.
Við kvetjum Borgnesinga og annað fluguhnýtingarfólk til að mæta og taka þátt í stofnun þessa ágæta félags.
Vonumst til að sjá sem flesta
Undirbúningsnefndin
